Grótta
About
Íþróttafélagið Grótta var stofnað árið 1967 af Garðari Guðmundssyni. Á vegum Gróttu eru starfræktar þrjár deildir; fimleikadeild, handknattleiksdeild og knattspyrnudeild. Gróttunafnið hefur beina og ótvíræða tilvitnun til Seltjarnarness. Það kemur til vegna vestasta hluta Seltjarnarnessins sem heitir Grótta. Þar er viti og er félagið nefnt eftir þeim vita.