Viltu leika á langspil?
Harpa | Fimmund, Harpa | Fimmund, 5.hæð
Sun 13.09.2026 10:30
Viltu leika á langspil? (fyrir 6 ára og eldri)
Staður: Þríund í Hörpu
Dagsetning: Sunnudagur 13. september
Tími: Kl. 10:30, 11:30 og 13:00
Fyrir hverja: Börn 6 ára og eldri ásamt foreldrum
Aðgangur: Ókeypis, en nauðsynlegt er að ná sér í miða á harpa.is frá og með 7. september.
Hvernig hljómar langspil, og hvernig er eiginlega spilað á það?
Í þessari skemmtilegu langspilssmiðju leiðir Eyjólfur Eyjólfsson börn og foreldra inn í heim langspilsins. Þátttakendur læra undirstöðuatriðin í langspilsleik og fá sjálfir að spreyta sig á þessu einstaka íslenska hljóðfæri.
Á leiðinni kynnast þátttakendur sögu langspilsins og hlutverki þess í gamla bændasamfélaginu og baðstofumenningunni. Kennd verða valin lög úr þjóðlagasafni sr. Bjarna Þorsteinssonar og í lok smiðjunnar fá þátttakendur að flytja lögin saman á langspil.
Langspilið hefur nú eignast sinn stað í Hljóðhimnum, upplifunarrými fyrir börn og fjölskyldur í Hörpu, þar sem gestir geta kynnst hljóðfærinu og prófað það sjálfir.
Smiðjan er hugsuð fyrir börn og foreldra til að taka þátt saman.
Performers
-
Eyjólfur EyjólfssonTenor