Veturnáttablót í Öskjuhlíð

Veturnáttablót í Öskjuhlíð

Öskjuhlíð, Varmahlíð 1, 105 Reykjavík Directions

Sat Oct 24 2026 19:00

Veturnáttablót verður haldið á fyrsta vetrardegi 24. október næstkomandi í hofinu okkar í Öskjuhlíð.

Hvammverjagoði Alda Vala Ásdísardóttir helgar blótið sem hefst kl. 19:00. Teitur Magnússon tónlistarmaður tekur nokkur lög.

Um er að ræða Pálínuboð þar sem félagið býður grunn að veitingum sem gestir geta svo bætt í.

Til að skrá sig þarf að senda tölvupóst á skrifstofa@asatru.is.

Þar þarf að koma fram eitt nafn og svo fjöldi fólks sem fylgir viðkomandi. Að auki þarf að koma fram hvaða rétt viðkomandi ætlar sér að koma með um kvöldið. Þá er t.d. hægt að koma með einn aðalrétt eða einn eftirrétt.

Til að forðast að of mikið sé af líkum réttum þá er hægt að smella á hlekkinn hér að neðan til að sjá hvað er komið á borðið;

https://docs.google.com/spreadsheets/d/e/2PACX-1vTk506-CZGMXNpbE-gyP_oDPJNKJr63I7QEa1brePcn0etJa1nLbYvi7GGp9S3W1oZXxsoi-wQbYeSC/pub?gid=0&single=true&output=pdf

Hlökkum til að sjá ykkur.