VÆB í Hörpu | Fjölskyldudagskrá Hörpu
Harpa | Hörpuhorn, Hörpuhorn, 101 Reykjavík Directions
Sat 17.10.2026 14:00
VÆB í Hörpu
Staður: Hörpuhorn í Hörpu
Dagsetning: Laugardagur 17. október
Tími: Kl. 14:00
Aldur: Allur aldur
Aðgangur: Ókeypis og ekki þarf að sækja miða
VÆB-bræður mæta í Hörpuhorn með fjölskylduvæna tónleika þar sem stuð og stemning verða í fyrirrúmi!
Bræðurnir Hálfdán Helgi og Matthías Davíð Matthíassynir skipa dúettinn VÆB, sem hefur vakið mikla athygli fyrir kraftmikla tónlist, húmor og líflega sviðsframkomu. Árið 2025 kepptu þeir fyrir Íslands hönd í Eurovision með laginu RÓA.
Á tónleikunum í Hörpu verður boðið upp á sannkallað VÆB fyrir alla fjölskylduna – hressandi tónlist, góða stemningu og nóg af stuði.
Performers
-
VÆBChildren's and youth choir