Þórey Ómarsdóttir sýnir á Leyni
Leyni, Hafnarstræti 95, 600 Akureyri Directions
Thu Sep 24 2026 20:00
Þórey Ómarsdóttir opnar sýningu á Leyni fimmtudaginn 24 september klukkan 20:00 Sýningin stendur í tvær vikur
Þórey er fædd á Siglufirði 1983 en alin upp og búsett á Akureyri. Hún stundaði fornám við Myndlistaskólann á Akureyri 2004. Þórey starfaði fyrir Gilfélagið um tíma, og vann sem unglingur við hin ýmsu störf í Ketilhúsinu og Deiglunni, auk þess að vera alin upp við ríka þáttöku í menningarlífi bæjarins.
Hugur Þóreyjar hefur fyrst og fremst verið við ljóðaskrif í gegnum árin, en hún uppgötvaði vatnsliti sem miðil og fann sér þar nýjan farveg til sköpunar. Myndefnið er mjúkt abstrakt landslag, ástaróður til stranda, heiða, hafsins, og hinnar draumkenndu íslensku birtu.
Verkin eru að hluta til ljóð eða örsögur, en Þórey notast fyrst og fremst við textann sem myndflöt. Hann er ekki fyrirfram ritaður og því ekki færi á ritskoðun, hann birtist einfaldlega jafnóðum og penni mætir pappír. Oftast er hann innlit í skáldaðan hugarheim eða hversdagslegar aðstæður persóna, annaðhvort með rómantískum brag eða glettni. Tengsl, gleði, tregi og sam-mannlegar upplifanir eru algengustu viðfangsefnin.