Syngjum saman jólalögin í Hannesarholti með Þráni Árna

Syngjum saman jólalögin í Hannesarholti með Þráni Árna

Hannesarholt, Grundarstigur 10, 101 Reykjavík Directions

Sat Dec 12 2026 14:00

Syngjum saman jólalögin í Hannesarholti með Þráni Árna laugardagainn 12.desember kl.14. Textar á tjaldi og allir taka undir. Allar kynslóðir velkomnar. Frítt inn. Streymt verður frá söngstundinni.

Að syngja er góð skemmtun og afar heilandi, en þegar jólaandinn svífur að auki yfir Hannesarholti eru hreinir töfrar í loftinu. Þráinn er mikill jólakarl og mætir með kassagítar og góða skapið og segir líklega eina eða fjórtán sögur milli laga.

Allir eru velkomnir í Hannesarholt að syngja með okkur jólalög í desember. Veitingahúsið er opið frá 11.30-16.00