Sunnudagaskóli í Bústaðakirkju
Bústaðakirkja, Tunguvegur 25, 108 Reykjavík Directions
Sun Sep 27 2026 11:00
Á sunnudögum komum við saman, börn á öllum aldri og höfum það gaman. Við syngjum, heyrum sögur og biðjum saman. Jónas Þórir, kantor kirkjunnar situr við flygilinn og glæðir stundina fegurð með fögrum tónum. Stundina leiða leiðtogar og prestar kirkjunnar eru þeim til halds og trausts.
Eftir stundina komum við saman í safnaðarheimili Bústaðakirkju og fáum okkur hressingu. Þá gefst tækifæri til þess að spjalla og leyfa börnunum að lita og leika sér.
Verið hjartanlega velkomin í Bústaðakirkju.
Einhverju sinni, þegar sunnudagaskóla var lokið og fólkið streymdi út úr kirkjunni sat stúrinn drengur á kirkjubekk og neitaði að fara. Þegar presturinn spurði hann hvað væri að þá svaraði hann og sagði: "Við gleymdum að syngja tikki-tikki-ta."
:,: Tikki, tikki ta, tikki, tikki ta,
tikki, tikki, tikki, tikki ta. :,:
:,: Alla daga’ og allar nætur
augu Jesú vaka yfir mér. :,: