Sögustund með Maxímús

Sögustund með Maxímús

Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Directions

Sat 26.09.2026 10:30

Sögustund með Maxímús (fyrir 3–12 ára)

 Staður: Kaldalón í Hörpu
 Dagsetning: Laugardagur 26. september
 Tími: Kl. 10:30 á íslensku og íslensku táknmáli og kl. 11:30 á pólsku
 Lengd: 60 mínútur
 Aldur: 3–12 ára
 Aðgangur: Ókeypis, en nauðsynlegt er að ná sér í miða á harpa.is frá 21. september.

Kíktu í heimsókn til Maxímúsar Músíkúsar, knáu litlu músarinnar sem býr í Hörpu og elskar tónlist!

Í þessari klassísku sögustund er sagan um Maxímús músíkús, eftir Hallfríði Ólafsdóttur, lesin fyrir börnin og fallegum myndskreytingum Þórarins Más Baldurssonar varpað á skjá. Börnin fylgja Maxímúsi á ævintýrum hans og kynnast töfrandi heimi tónlistarinnar í gegnum söguna.

Boðið verður upp á tvær sögustundir: kl. 10:30 á íslensku og íslensku táknmáli og kl. 11:30 á pólsku.

Notaleg og skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna í félagsskap einnar þekktustu músar Hörpu!

Performers