Silva & Steini - Jól á Fantasíu

Silva & Steini - Jól á Fantasíu

Vinnustofa Kjarval - Fantasía, Austurstræti 12, 101 Reykjavík Directions

Thu Dec 17 2026 20:00

Silva Þórðardóttir og Steingrímur Teague hafa verið að syngja saman uppáhalds jólalögin sín svo árum skiptir, og fyrir jólin 2024 gáfu þau einmitt út plötuna Christmas With Silva & Steini, sem inniheldur nákvæmlega það sem titillinn segir. Sum lögin á prógramminu eru þekkt, önnur bara alls ekki, en öll eru þau falleg og skemmtileg, og gaman að flytja þau. Hljómsveitin verður stórfengleg, og mikið lagt upp úr nánd, innileika og samhljóma röddum.

„Þau gera þetta fáránlega, fáránlega vel. White Christmas, sem maður ætti að vera kominn með eitt mesta ógeð allra tíma á, er algerlega frábært.“

- Árni Matthíasson um plötuna Christmas With Silva & Steini

Flytjendur verða:

Silva Þórðardóttir: söngur

Steingrímur Teague: söngur og píanó

Andri Ólafsson: bassi

Eiríkur Orri Ólafsson: málmblástur

Magnús Trygvason Eliassen: trommur