Ryosuke Kiyasu í KIOSK108

Ryosuke Kiyasu í KIOSK108

KIOSK108, KISOK108, Seyðisfjörður Directions

Tue 22.09.2026 20:00

Japanski tón- og sviðslistamaðurinn Ryosuke Kiyasu kemur fram í KIOSK108 á Seyðisfirði 22. september. Þetta er jafnframt síðasti viðburður sumarsins í KIOSK108.

Ryosuke Kiyasu hóf feril sinn sem sneriltrommuleikari í Kanada árið 2003. Í rúma tvo áratugi hefur hann verið drifkraftur í avant-garde-tónlistarsenunni, komið víða fram sem einleikari og spilað með hljómsveitinni SETE STAR SEPT. Hann hefur einnig gegnt hlutverki trommuleikara í hinni goðsagnakenndu sveit Keiji Haino, Fushitsusha.

Árið 2018 fór myndband af lifandi flutningi hans í Berlín eins og eldur í sinu á netinu, náði yfir 23 milljónum áhorfa og vakti umræðu víða um heim. Í kjölfarið birtust umfjallanir um hann í alþjóðlegum fjölmiðlum á borð við BBC News og VICE. Á síðari árum hefur hinn einstaki flutningsstíll hans einnig verið til umfjöllunar í breska tískutímaritinu i-D, sem hefur enn frekar styrkt stöðu hans sem áhrifavalds bæði í tónlist og samtímamenningu.

Verk hans hafa hlotið mikla viðurkenningu innan slagverksheimsins og var hann tvisvar aðalgestur Überschlag-hátíðarinnar í Þýskalandi sem er ein stærsta tvíæringshátíð heims tileinkaðri slagverki.

Tryggið ykkur miða með því að senda póst á kiosk108seydisfjordur@gmail.com eða hringja í síma 896-4224

KIOSK108 er vettvangur fyrir sjálfstæða listsköpun og starfsemi, starfrækt í gömlu stýrishúsi. Staðnum er ætlað að leiða fólk saman og endurskilgreina vettvanga fyrir menningu og list. Frá árinu 2021 hefur fjöldi innlendra og erlendra listamanna komið fram í KIOSK108

Performers

  • Ryosuke Kiyasu
    Ryosuke Kiyasu

    Ryosuke Kiyasu is an internationally acclaimed snare drum soloist, active since 2003.