Fyrir hverja?
Námskeiðið er opið stelpum og einstaklingum sem tilheyra jaðarsettum kynjum frá aldrinum 15-20 ára.
Engin þekking á tónlist nauðsynleg. Við búum til öruggt rými til að fikta, prófa sig áfram og gera mistök!
Hvað er kennt?
Þar fá þátttakendur grunn í raftónlist, læra að semja lög í Ableton Live og þeyta skífum. Við hvetjum þau sem vilja til að syngja og rappa inn á lögin sín og verðum með aðstöðu til að taka upp.
Margar tónlistarstefnur koma til greina en tónlist gerð í tölvu verður þó meginkennsluefnið, enda fyrst og fremst kennt á Ableton Live.
Í lok námskeið verða þátttakendur búnir að búa til drög að lagi sem við hlustum svo öll saman á í hlustunarpartíi í Tónlistarmiðstöð Læti! síðdegis þann 2. júní.
Búðirnar fara fram bæði á íslensku og ensku.
Dagsetningar: 29. maí, 31. maí, 1. júní og hlustunarpartí 2. júní
Staðsetning: Fellaskóli, 111 Reykjavík
Hlustunarpartí: Tónlistarmiðstöð Læti!, 111 Reykjavík
Fimmtudagur 29. maí (Uppstigningadagur) 09:30-16:00
– Frí föstudaginn 30. maí –
Laugardagur 31. maí 09:30-16:00
Sunnudagur 1. júní 09:30-16:00
Mánudagur 2. júní – Hlustunarpartí 17:30-19:00
Þátttökugjald er valfrjálst. Frí pláss eru einnig í boði.
Stelpur rokka! / Læti! eru sjálfboðasamtök sem starfa ekki í hagnaðarskyni og eru öll framlög umfram viðmiðunargjald vel þegin.
Aðeins 20 pláss eru í boði.
SKRÁNING: https://forms.gle/cre3dWYcGLS3eWxf9
Markmiðið er að jafna aðgengi stúlkna og jaðarsettra kynja að raftónlist. Verkefnið er styrkt af Erasmus+ og Barnamenningarsjóði. Allt starf Læti! tónlistar er styrkt af Reykjavíkurborg.