Októberfest Lúðrasveitar Hafnarfjarðar

Októberfest Lúðrasveitar Hafnarfjarðar

ÆGIR 220 brugghús, Strandgata 90, 220 Hafnarfjörður Directions

Sat Oct 17 2026 18:00

Það er komið að hinum árlega Októberfest viðburði Lúðrasveitar Hafnarfjarðar þar sem fluttir eru valdir slagarar úr hinni víðfrægu grænu möppu LH en mappan sú geymir það allra besta í þýskri bjórtónlist auk íslenskra gullmola í svipuðum stíl. Það er vægt til orða tekið að segja að gríðarleg stemning myndast jafnan á Októberfest LH í Ægi sem nú er haldin í þriðja sinn.

Húsið opnar klukkan 18, Lúðrasveitin byrjar að spila kl. 20.

Aðgangur ókeypis!

Skál!