Jólaframtíðir. Árið er 3026

Jólaframtíðir. Árið er 3026

Thu Dec 10 2026 12:10

Ekki missa af þessum viðburði

Gunnar Helgason gefur út bók sem gerist eftir eitt þúsund ár á Íslandi og bæði á og við Norðursjó.

Hann þurfti að fara í mikla rannsóknarvinnu við samningu bókarinnar til að heimsmyndin yrði trúverðug.

Hvar er Reykjavík? Af hverju eru Færeyjar helvíti á jörðu? Hvaða nútíma fyrirbæri eru ómetanlegir fornmunir framtíðarinnar?

Niðurstaðan gefur ekki ástæðu til bjartsýni en kemur kannski líka örlítið á óvart.

Vefslóðin á fundinn

https://teams.microsoft.com/meet/3381852052705677?p=Ms7RIgFcXinxBcZp47 

Gunnar Helgason er margverðlaunaður barnabókahöfundur og hefur gefið út 31 bók á Íslandi og erlendis auk þess að hafa skemmt börnum í sjónvarpi, á sviði og í kvikmyndum í tugi ára.