Hvernig stofna ég fyrirtæki?
Vinnustofa Kjarval, Austurstræti 10, 101 Reykjavík Directions
Wed Oct 28 2026 17:00
Förum yfir hvernig þú stofnar fyrirtæki og hverju þarf að huga að í léttu spjalli í Fantasíu á Vinnustofu Kjarvals, Reykjavík.
Dagskrá:
- Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir, forstöðumaður á fyrirtækjasviði hjá Arion banka, fer yfir praktísku málin varðandi það hvernig þú stofnar fyrirtæki.
- Jórunn Pála Jónasdóttir, lögfræðingur hjá Verði, fer yfir hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að tryggingum fyrirtækja.
- Helga Sigrún Hermannsdóttir, stofnandi og rannsókna- og vöruþróunarstjóri Dóttir Skin, deilir reynslu sinni af því að byggja upp fyrirtæki frá grunni. Hún segir frá vegferð Dóttir Skin, áskorunum á leiðinni og því sem hún hefur lært sem stofnandi og frumkvöðull.
Fyrirlesturinn er um 90 mínútur, spjall og spurningar í kjölfarið.
Hvetjum vinkonur til að mæta saman, eiga góða kvöldstund og halda umræðunni áfram að loknum fyrirlestri.