HEILSAN TIL FRAMTÍÐAR
Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Directions
Fri 25.09.2026 09:00
Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum?
Viðburður í tilefni af 30 ára afmæli Lyfju og Alþjóðadegi lyfjafræðinga í Norðurljósasal Hörpu frá kl. 9-12, föstudaginn 25. september.
Á viðburðinum munu íslenskir og erlendir sérfræðingar deila reynslu, rannsóknum og raunverulegum lausnum sem hafa skilað árangri við að bæta heilsu almennings og nýta heilbrigðisauðlindir samfélagsins betur.
Dagskrá💚
🌱 Frá meðhöndlun sjúkdóma yfir í að byggja upp langvarandi heilsu
Dr. David Barzilai, MD, PhD, MBA, MS, DipABLM
Læknir og lektor við Harvard Medical School og leiðandi sérfræðingur í heilbrigðum æviárum, forvörnum og framtíð heilbrigðiskerfa.
🌱 Leynivopn heilbrigðiskerfisins
Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir, formaður Lyfjafræðingafélags Íslands
🌱 Fjölgum heilbrigðum æviárum | Rafrænt erindi
Dr Tommy Wood, PhD, prófessor í barnalækningum og taugavísindum við háskólann í Washington
🌱 Heilsa er sameiginlegt hagsmunamál
Karen Ósk Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Lyfju
Pallborðsumræður | Hvernig byggjum við upp heilsu almennings til framtíðar?
🌱Karen Ósk Gylfadóttir stýrir pallborðsumræðum með þátttöku:
🌱 Thors Aspelund, doktor í tölfræði og prófessor í líftölfræði við Háskóla Ísland í Miðstöð lýðheilsuvísindum og tölfræðingur hjá Hjartavernd
🌱 Sigrún Hallgrímsdóttir, barnalæknir, áður við Heilsuskóla barnaspítalans
🌱 Sigurður Þórarinsson, forstöðumaður Stafrænnar heilsu
Að dagskrá lokinni verður gestum boðið að halda áfram samtalinu, þiggja léttar hádegisveitingar og eiga góða stund saman í Hörpuhorni.
Kauptu miða hér: https://www.lyfja.is/lendingarsidur/heilsan-til-framtidar/
Performers
-
LyfjaPharmacy chain