HamingjuHelgafell með Rúnari Pálssyni
Bílastæðið við Kaldárselsveg, Bílastæðið við Kaldárselsvegur, Hafnarfjörður
Thu 03.09.2026 17:30
Fimmtudaginn 3. september kl. 17:30 – gengið frá bílastæðinu við Kaldárselsveg 🚶🚶♀️
Komdu með í HamingjuHelgafellsgöngu þegar Rúnar Pálsson leiðir þátttakendur upp á Helgafell á Hamingjudögum í Hafnarfirði.
Helgafell hefur lengi verið eitt af einkennisfjöllum Hafnarfjarðar og fáir þekkja sögu þess og einstaka stemningu betur en Rúnar. Hann hefur gengið á fjallið ótal sinnum og síðustu 30 ár séð um gestabókina á toppnum sem geymir ótal kveðjur og minningar þeirra sem lagt hafa leið sína á fjallið ⛰️🌱
Gangan er einstakt tækifæri til að njóta útivistar, hreyfingar og góðrar samveru á einum fallegasta útsýnisstað bæjarins.
Hvort sem þú hefur gengið á Helgafell hundrað sinnum eða ert að leggja leið þína þangað í fyrsta skipti, þá ert þú hjartanlega velkomin(n) með.
Göngum saman upp á Helgafell!
HamingjuHelgafell er hluti af Hamingjudögum í Hafnarfirði, sjá nánar 👉 hfj.is/hamingjudagar
Hlökkum til að sjá ykkur! 🤗
Performers
-
HafnarfjarðarbærHafnarfjörður er þriðji stærsti bær landsins, framsækið sveitarfélag sem byggir á fjölsky