Fræðslufundur fyrir forráðafólk barna og unglinga í Garðabæ
Sjálandsskóli, Langalína 8, 210 Garðabær Directions
Wed Nov 04 2026 19:30
Forvarnarvikan í Garðabæ verður haldin 4.–11. nóvember. Boðið verður upp á fræðslufund fyrir forráðafólk barna og unglinga og aðra áhugasama miðvikudaginn 4. nóvember í Sjálandsskóla klukkan 19:30 - 21:00.
Dagskrá fundar:
👉 Birkir Guðlaugsson., formaður íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar, opnar dagskrá kl. 19:30
👉 Jóhann Vikar Bergmann, nemandi í Tónlistarskóla Garðabæjar og í 10. bekk í Garðaskóla, leikur á píanó.
👉 Ásgerður Arna Sófusdóttir, hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri hjá Geðheilsumiðstöð barna, flytur erindið Ertu að tengja? Hvernig tengsl umönnunaraðila styðja við líðan, sjálfsmynd og farsæld barna í skólanum.
👉 Samfélagslögreglan fer yfir stöðuna í Garðabæ
👉 Samtal
Fundarslit kl. 21:00.