ÖBÍ í Gleðigöngunni
Mannréttindahús ÖBÍ, Sigtún 42, 105 Reykjavík Directions
Sat 08.08.2026 12:00
Hinsegin fatlað fólk er alls konar og tilheyrir fjölbreyttum hinsegin- og fötlunarhópum sem og samfélaginu í heild sinni.
ÖBÍ réttindasamtök taka þátt í Gleðigöngunni 8. ágúst undir yfirskriftinni „Við tilheyrum!“ með því markmiði að auka sýnileika hinsegin fatlað fólks og aðgengi þess að hinsegin samfélaginu.
Við hvetjum fatlað fólk til að ganga með okkur 8. ágúst, styðja við mannréttindabaráttu alls hinsegin fólks og vekja athygli á aðstæðum fatlaðs hinsegin fólks.
Í ár verður ÖBÍ með vagn auk tuk tuk bíla til að létta för þeirra sem eiga erfitt með langar göngur.
Þáttakendum í gönguhópnum verður boðið upp á frábæra boli á meðan að birgðir endast. Merki og hönnun bolanna er unnin af dragdrottningunni Starínu sem er hinsegin fatlaður listamaður og meðlimur í undirbúningshópi ÖBÍ fyrir Hinsegindaga.
Við ætlum að hittast í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42, stundvíslega klukkan 12 til að undirbúa okkur og fara samferða að Hallgrímskirkju.
Gangan fer af stað frá Hallgrímskirkju stundvíslega klukkan 14:00. Gengið er þaðan eftir Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu og Fríkirkjuvegi. Gangan endar við gatnamót Fríkirkjuvegar og Skothúsvegar, en atriði halda áfram inn Sóleyjargötu og þaðan inn í Hljómskálagarðinn þar sem útitónleikar taka við.
Skráning í skiltagerð og atriði ÖBÍ í Gleðigöngunni fer fram í gegnum hlekkinn hér að neðan:
https://www.obi.is/skraning-gledigangan-med-obi/
Hlökkum til að sjá ykkur!
Performers
-
ÖBÍ réttindasamtökOrganization involved in the event