Dimmalimm | Fjölskyldudagskrá Hörpu
Harpa | Hörpuhorn, Hörpuhorn, 101 Reykjavík Directions
Sat 28.11.2026 10:30
Staður: Hörpuhorn í Hörpu
Dagsetning: Laugardagur 28. nóvember
Tími: Kl. 10:30 og 11:30
Lengd: 30 mínútur
Aðgangur: Ókeypis og ekki þarf að sækja miða
Í samstarfi við: Píanókvartettinn Neglu
Sagan um Dimmalimm prinsessu og svaninn hefur fylgt íslenskum börnum í kynslóðir. Að þessu sinni er sagan sögð með tónlist Atla Heimis Sveinssonar í útsetningu Þórðar Magnússonar.
Píanókvartettinn Negla flytur tónlistina ásamt söngkonunni Sigríði Ástu Olgeirsdóttur og saman leiða þau áheyrendur inn í fallegan ævintýraheim Dimmalimm.
Falleg og notaleg tónlistarstund fyrir fjölskylduna þar sem ein ástsælasta barnasaga Íslands fær að hljóma á nýjan hátt.
Performers
-
Píanókvartettinn NeglaMusicGroup