DIMMA á Selfossi
Sviðið, Sviðið, Selfoss | Sviðið Directions
Fri 23.10.2026 21:00
DIMMA á Selfossi
DIMMA rís nú upp aftur, tvíefld með nýja liðskipan og nýtt lag sem heitir Skarkali!
Lagið er það fyrsta sem heyrist frá DIMMU í heil 5 ár og gefur hugmynd um hverju fólk má eiga von á frá sveitinni á sjöundu breiðskífu hennar, sem nú er í vinnslu og væntanleg á næsta ári.
DIMMA hefur starfað í ýmsum myndum frá árinu 2003 og lengi verið ein vinsælasta rokksveit landsins, enda þekkt fyrir vandaðar lagasmíðar, öflugan flutning og kraftmikla framkomu á tónleikum.
Langt er um liðið síðan DIMMA lék síðast á Selfossi en þessir tónleikar verða sögulegir, enda þeir fyrstu á Sviðinu og fyrstu með nýrri liðskipan.
Þetta er því rokkviðburður sem þú vilt ekki missa af!
DIMMA eru:
- Ivan Mendez : Söngur
- Skúli Gíslason : Trommur
- Silli Geirdal : Bassi
- Ingó Geirdal : Gítar
Performers
-
DimmaOne of the most popular rock bands in Iceland for the past decade.