DAVID BOWIE 80 ÁRA - TÓNLEIKASÝNING

DAVID BOWIE 80 ÁRA - TÓNLEIKASÝNING

Háskólabíó | Salur 1, Hagatorg, 107 Reykjavík Directions

Sat Feb 27 2027 20:00

Í tilefni af 80 ára afmæli David Bowie verður honum sýndur verðskuldaður heiður með stórkostlegri tónleikasýningu í Háskólabíói þann 27. febrúar næstkomandi. Sérstakur heiðursgestur er Bandaríski píanóleikarinn Mike Garson, sem um áratugaskeið var einn nánasti tónlistarsamstarfsmaður David Bowie, kemur til Íslands í febrúar og tekur þátt í tónleikasýningunni.

Mike Garson er rómaður bandarískur píanóleikari, tónskáld og kennari sem á að baki einstakan feril á sviði djass, klassískrar tónlistar, rokks og popps. Hann er óhræddur við að fara ótroðnar slóðir í tónlist sinni og þekktur fyrir einstakan spuna og auðþekkjanlegan leikstíl. Garson er þó líklega þekktastur fyrir að hafa starfað lengst allra hljómsveitarmeðlima með David Bowie og komið oftast fram með honum á tónleikum.

Einstakt samstarf þeirra hófst árið 1972 þegar Garson gekk til liðs við Bowie í fyrstu tónleikaferð hans um Bandaríkin. Samstarfið spannaði meira en þrjá áratugi og náði til fjölmargra sögufrægra hljóðversplatna og tónleikaferða um heim allan. Byltingarkenndur píanóspuni Garson í titillaginu Aladdin Sane er enn í dag talinn einn eftirminnilegasti píanóleikur rokksögunnar. Í nóvember 2006 lék Garson með Bowie á góðgerðartónleikum í New York, þar sem þeir stigu saman á svið í það sem átti eftir að verða síðasta opinbera tónleikaframkoma Bowie. 

Fjölhæfni Garson hefur gert hann að eftirsóttum samstarfsmanni fjölmargra tónlistarmanna, meðal annars Nine Inch Nails, The Smashing Pumpkins og Sting. Hann er afkastamikið tónskáld og hefur alla tíð lagt rækt við kennslu. Garson heldur áfram að kanna nýjar víddir tónlistarinnar og einkennast tónlistarflutningur hans og sköpun af frumleika, hugmyndaauðgi og einstakri leikni.

Einvalalið söngvara og hljóðfæraleikara mun flytja þekktustu lög meistarans samhliða því að saga Bowie verður rifjuð upp í sögulegu samhengi af doktornum og músíkspekúlantinum Arnari Eggerti Thoroddsen. Þetta verður einstök kvöldstund sem enginn sannur Bowie-aðdáandi má missa af.

Eyþór Ingi Gunnlaugsson mun leiða Eirík Hauksson og Diljá Pétursdóttir í gengum meistaraverk Bowie.

Sögumaður: Arnar Eggert Thoroddsen
Trommur: Benedikt Brynleifsson
Bassi: Ingi Björn Ingason
Píanó: Tómas Jónsson
Hljómborð: Þorbjörn Sigurðsson
Gítar: Reynir Snær Magnússon
Gítar: Franz Gunnarsson
Saxafónn / ásláttur: Sigurður Flosason