Bríet | Af fingrum fram

Bríet | Af fingrum fram

Salurinn, Hamraborg 6, 200 Kópavogur Directions

Thu 11.02.2027 20:30

Af fingrum fram hefur nú sitt 17. starfsár í Salnum í Kópavogi en í þessari sívinsælu spjalltónleikaröð tekur Jón Ólafsson á móti fjölbreyttum hópi listafólks þar sem einlæg samtöl, skemmtilegar sögur úr tónlistarlífinu og lifandi flutningur ráða ríkjum og skapa þannig einstaka kvöldstund. 

Tónleikaröðin á rætur sínar að að rekja til samnefndra sjónvarpsþátta sem meðal annars hlutu Edduverðlaunin árið 2002. Fyrir 17 árum ákvað gestgjafinn að flytja hugmyndina úr sjónvarpssal og yfir á svið Salarins í Kópavogi við mikinn fögnuð landans sem flykkst hafa á tónleikaröðina allar götur síðan.  

Jón Ólafsson er samur við sig þennan tónleikaveturinn og fær áfram til sín fjölbreyttan flokk listafólks í einlægt spjall og góða tóna. 

Gestir Af fingrum fram 2026-2027 eru eftirfarandi: 

  • 17. september 2026: Halli og Gói
  • 1. október 2026: Una Torfa
  • 15. október 2026: Jón Jónsson
  • 5. nóvember 2026: Jónas Sig
  • 26. nóvember 2026: Ragga Gísla 

//

  • 21. janúar 2027: Mugison
  • 11. febrúar 2027: Bríet
  • 11. mars 2027: Daníel Ágúst
  • 8. apríl 2027: Ólöf Arnalds
  • 6. maí 2027: Sóli Hólm



Performers