Ævintýri í Jólaskógi
Guðmundarlundur í Kópavogi, v. Landsenda, 203 Kópavogur Directions
Sat Nov 21 2026 19:00
Ævintýri í Jólaskógi
Töfrandi vasaljósaganga fyrir alla fjölskylduna í Guðmundarlundi
Þegar rökkva tekur, lifnar Jólaskógurinn við.
Gestir leggja af stað með vasaljós að vopni inn í dimman og
ævintýralegan skóg þar sem ýmsar furðuverur leynast á milli trjánna. Á
leiðinni verða á vegi þeirra kunnuglegar persónur úr uppáhalds
jólafjölskyldu okkar Íslendinga – Grýla, Leppalúði, jólasveinarnir og
tröllasystkini þeirra.
Ævintýri í Jólaskógi er tæplega klukkutíma löng leikhúsupplifun undir
berum himni þar sem áhorfendur ganga í litlum hópum um skóginn í
Guðmundarlundi, vopnaðir vasaljósum. Náttúran, myrkrið og jólaljósin
verða hluti af leiksviðinu og enginn veit alveg hvað bíður handan við
næsta tré.
Sýningar hefjast á 10 mínútna fresti og byrja ekki fyrr en farið er að
skyggja. Ferðalagið um skóginn er varðað jólakúlum, luktum og öðru
jólaskrauti sem vísar áhorfendum veginn í gegnum ævintýrið.
Eftir stutta göngu kemur hópurinn að fyrsta „sviðinu“ þar sem einn íbúa
Grýluhellis tekur á móti gestum og segir þeim litla jólasögu. Sögurnar
fjalla um ævintýri tröllafjölskyldunnar, lífið í Grýluhelli og jól fyrr
og nú. Hver saga er tæpar tíu mínútur og að henni lokinni heldur
hópurinn áfram inn í skóginn í leit að næsta ævintýri.
Alls eru fjögur „svið“ í skóginum og fjórar ólíkar sögur, fluttar af
íbúum Grýluhellis. Ferðalagið tekur tæpan klukkutíma og að því loknu
geta gestir fengið mynd af sér með jólasveini og yljað sér við heitt
kakó og piparkökur.
Ævintýri í Jólaskógi
Nýtt ævintýri á hverju ári
Ævintýri í Jólaskógi var fyrst sett upp fyrir jólin 2020 og er þetta því
sjöunda árið sem gestum er boðið í vasaljósagöngu um Guðmundarlund.
En þó hefðin sé orðin sjö ára gömul er sýningin ný á hverju ári.
Á hverju ári eru samdar nýjar sögur og ný ævintýri bíða gesta í
skóginum. Þeir sem hafa heimsótt Jólaskóginn áður geta því komið aftur
ár eftir ár og aldrei vitað fyrirfram hvað Grýla, Leppalúði,
jólasveinarnir og tröllasystkini þeirra hafa brallað í þetta sinn.
Verkið er eftir Önnu Bergljótu Thorarensen og er það hún, ásamt Andreu
Ösp Karlsdóttur, Grímu Kristjánsdóttur, Hafsteini Níelssyni, Hlyni
Þorsteinssyni, Sigsteini Sigurbergssyni, Snædísi Ingadóttur, Sólveigu
Guðmundsdóttur og Stefáni Benedikt Vilhelmssyni, sem bera ábyrgð á því
að jólasveinafjölskyldan skili sem bestu verki.
Gott að vita áður en lagt er af stað
Áhorfendur eru hvattir til að klæða sig vel eftir veðri, koma í góðum
skóm og taka með sér vasaljós. Sýningin fer öll fram utandyra og þessi
atriði eru nauðsynleg til að njóta ferðalagsins til hins ýtrasta.
Gott að vita áður en lagt er af stað
Áhorfendur eru hvattir til að klæða sig vel eftir veðri, koma í góðum
skóm og taka með sér vasaljós. Sýningin fer öll fram utandyra og þessi
atriði eru nauðsynleg til að njóta ferðalagsins til hins ýtrasta.
Frítt er fyrir börn tveggja ára og yngri og því þarf ekki að bóka miða
fyrir þau.
Við biðjum gesti að skilja hunda eftir heima, bæði svo þeir trufli ekki
sýninguna og af tillitssemi við aðra gesti.
Almennt miðaverð: 4.900 kr. á mann.
Klæðið ykkur vel, grípið vasaljósið og komið með okkur inn í
Jólaskóginn.