BLÚSHÁTÍÐ SUÐURLANDS

BLÚSHÁTÍÐ SUÐURLANDS

Sviðið, Miðbær Selfoss, Selfoss Directions

Fri 25.09.2026 21:00

Blúshátíð Suðurlands 2026 í miðbæ Selfoss

Tónlist, stemning og ekta blús fyllir Sviðið á Selfossi dagana 25.- 26. september þegar Blúshátíð Suðurlands fer fram í fyrsta skipti.

Í samstarfi við Thule bjóðum við upp á tvö kvöld þar sem nokkrir af fremstu blústónlistarmönnum landsins stíga á svið og skapa einstaka stemningu í hjarta Selfoss.

Á svið stíga:

• Kristjana Stefánsdóttir og hljómsveit

• Pálmi Gunnars og Blúskompaníið

• Blúsband Óskars Loga (Vintage Caravan)

• Blúsband Begga Smára

• Rót

• BB & the Bluebirds

Athugið: Takmarkað miðaframboð.

Safnaðu vinahópnum, tryggðu þér miða í tæka tíð og upplifðu blúshelgi sem á eftir að festa sig í sessi sem einn af skemmtilegustu tónlistarviðburðum landsins.

Miðasala hefst fljótlega!

Performers