Frístundamessa fyrir börnin í Hafnarfirði

Frístundamessa fyrir börnin í Hafnarfirði

Íþróttahúsið Strandgötu, Strandgata 53, 220 Hafnarfjörður Directions

Sat 29.08.2026 10:00

👉 Laugardaginn 29. ágúst koma íþrótta- og tómstundafélög Hafnarfjarðar saman og kynna starfsemi sína fyrir börnum og foreldrum þeirra, í íþróttahúsinu á Strandgötu. 🤼‍♂️🤸‍♀️🤾‍♀️⛷️🏓🏸🤽🚣‍♀️🚴‍♀️

Tilgangur frístundamessunnar er að börnin finni íþrótt eða tómstund sem hæfir þeim. 👶🙇‍♀️🧒

Alls starfa 38 íþróttafélög í Hafnarfirði. Innan þeirra er hægt að finna fjöldan allan af íþróttagreinum. Kynnast má mörgum þeirra á frístundamessunni 29. ágúst. Þau bjóða börnum uppá kynningar og prufur.

👌 Brúarsmiðirnir verða á svæðinu til að tryggja að fólk með mismunandi tungumála- og menningarbakgrunn geti einnig tekið þátt.

Frístundamessan hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 14:00

Við sjáum þig á svæðinu með börnin!

Performers