Blús milli fjalls og fjöru – 15 ára afmælishátíð

Blús milli fjalls og fjöru – 15 ára afmælishátíð

Félagsheimili Patreksfjarðar, Aðalstræti 107, 450 Patreksfjörður Directions

Sat 29.08.2026 19:30

Blús milli fjalls og fjöru – 15 ára afmælishátíð

Dagana 28. og 29. ágúst 2026 snýr Blús milli fjalls og fjöru aftur á Patreksfjörð og fagnar 15 ára afmæli sínu.

Frá árinu 2012 hefur hátíðin verið fastur liður í menningarlífi Vestfjarða og skapað sér sess sem einstakur tónlistarviðburður þar sem blús, rokk og rótartónlist fá að njóta sín í hlýlegu og persónulegu umhverfi.

Í ár koma fram Skúli Menski og Blúsbandið, Hráefni og Blúsband Óskars Loga. Gestir geta búist við tveimur kvöldum af lifandi tónlist, frábærri stemningu og ógleymanlegri upplifun í hjarta Patreksfjarðar.

Miðaverð

  • Föstudagur: 5.000 kr.
  • Laugardagur: 5.000 kr.
  • Helgarpassi (bæði kvöld): 9.000 kr.

Föstudagur 28. ágúst

Skúli Menski og Blúsbandið

15 ára afmælishátíð Blús milli fjalls og fjöru hefst af krafti þegar Skúli Menski og Blúsbandið stíga á svið í Félagsheimili Patreksfjarðar.

Skúli Menski hefur um árabil verið einn af litríkustu tónlistarmönnum landsins og er þekktur fyrir kraftmikla sviðsframkomu, einlæga texta og tónlist sem sækir innblástur í blús, rokki og amerískri rótartónlist. Ásamt öflugu blúsbandi sínu býður hann upp á tónleika þar sem spilagleði, kraftur og nánd við áhorfendur eru í fyrirrúmi.

Verð: 5.000 kr.

Félagsheimili Patreksfjarðar
Föstudagur 28. ágúst 2026
Húsið opnar kl. 19:30

Laugardagur 29. ágúst

Hráefni og Blúsband Óskars Loga

Lokakvöld 15 ára afmælishátíðar Blús milli fjalls og fjöru verður sannkölluð tónlistarveisla.

Hráefni flytur kraftmikið íslenskt rokk með mikilli spilagleði og öflugri sviðsframkomu. Að því loknu tekur Blúsband Óskars Loga við. Sveitin hefur á skömmum tíma skapað sér sterkan sess á íslensku blússenunni með öflugum hljóðfæraleik, áhrifum frá klassískum blús og rokki og lifandi tónleikum þar sem spuninn fær að njóta sín.

Kvöldið sameinar kraft, spilagleði og einstaka vestfirska stemningu og verður glæsilegur endapunktur á 15 ára afmælishátíð Blús milli fjalls og fjöru.

Verð: 5.000 kr.

Félagsheimili Patreksfjarðar
Laugardagur 29. ágúst 2026
Húsið opnar kl. 19:30

Helgarpassi

Tryggðu þér sæti á báðum tónleikakvöldunum og upplifðu alla 15 ára afmælishátíðina.

Verð: 9.000 kr.


Performers

  • Blús milli fjalls og fjöru
    Blús milli fjalls og fjöru

    Þrettánda hátíð Blús milli fjalls og fjöru verður haldin 30. og 31. ágúst næst komandi. Dagskráin verður byggð á dægurlaga- og rokktónlist í bland við blúsinn sem skipar stóran sess í hjörtum Vestfirðinga sem og annarra landsmanna.Það verður ekki slegið af kröfunum í ár frekar enn endranær, eins og dagskráin ber með sér. Miðasala fer fram á tix.is og við hurð.

    Föstudagurinn 30. ágúst

    Lítli Matjurtagarðurinn. Er gamalt og gott blúsband sem eru mikið í Jimmy Hendrix og tónlist frá þeim tíma. Þarna eru valinkunnir reynsluboltar á ferð sem opna dagskrána á föstudagskvöld í þetta sinn.

    Bjartmar og Bergrisarnir. Þetta er eitt vinsælasta band landsins. Við erum stoltir yfir þessum feng á blúshátíð, sem eiga fjöldan allan af vinsælum lögum sem of langt yrði að telja hér.

    Laugardagurinn 31. ágúst

    Rock Paper Sisters. Er hágæða rokkband með Eyþór Inga í fararbroddi og það verður engin lognmolla. Eyþór er mikill skemmtikraftur, tónlistamaður og rokksöngvari af guðsnáð.

    The Vintage Caravan ljúka svo blúshátíð í ár með þrumurokki og hávaða sem er ekki fyrir viðkvæma. Óskar Logi forsprakki hljómsveitarinnar kom á hátíðina með blúsband sitt árið 2020 og gerði stormandi lukku.

    The Vintage Caravan fyllir tónlistarhallir og knattspyrnuvelli um allan heim, slíkar eru vinsældir þeirra. Í vetur fluttu þeir ásamt Eyþór Inga og fl. Tónleika með lögum Led Zeppelin í tvígang fyrir fullu húsi Hörpu á einum degi.

  • Hráefni
    Hráefni
    hljómsveitin Hráefni Valdi Fly gít/söng Þorleifur Guðjónsson bassi Þórdís Claessen trommur Bergþór Morthens gítar
  • Blúsband Óskars Loga
    Blúsband Óskars Loga

    Blues band that has gained attention in Iceland.