Lokatónleikar Reykjavík Piano Festival
Harpa | Kaldalón, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Directions
Tue 11.08.2026 19:30
Reykjavík Piano Festival er spennandi metnaðarfull hátíð sem tengir saman leiðandi erlenda píanókennara og alþjóðlegan hóp framúrskarandi píanónemenda, allt frá framhaldsstigi upp í háskólastig. Hátíðin er nú haldin í fyrsta sinn og er lið kennara m.a. skipað Antoinette Perry (prófessor við USC Thornton tónlistarháskólann), Audrey Axinn (prófessor við Juilliard tónlistarháskólann), Carl Zhang píanóleikara, sem býr og starfar í Vínarborg og Andrew J. Yang listrænum stjórnanda hátíðarinnar, sem kennir við Tónskóla Sigursveins og Tónskólann í Reykjavík. Nemendahópur hátíðarinnar er fjölbreyttur og kemur frá Íslandi, Bandaríkjunum, Póllandi og Spáni. Hátíðin stendur í viku með þéttskipaðri dagskrá, masterklössum, vinnustofum, einkatímum og ýmiskonar samveru og hópverkefnum. Hátíðinni lýkur með glæsilegum lokatónleikum í Hörpu. Frekari upplýsingar: https://www.reykjavikpianofestival.com/
Performers
-
Carl Zhang
Canadian pianist with top prizes in various esteemed competitions.
-
Andrew J. Yang
Pianist performing works by Medtner, Schubert, and original compositions.