Fríða Karlsdóttir - Memento mori á Leyni
Leyni, Hafnarstræti 95, 600 Akureyri Directions
Thu 30.07.2026 20:00
Fríða Karlsdóttir opnar sýninguna Memento mori á Leyni í göngugötunni, fimmtudaginn 30. júlí kl. 20.00 og stendur sýningin yfir í tvær vikur.
Memento mori: Partíið tekur alltaf enda. Vonleysi, volæði. Bágindi, bömmer.
Fríða Karlsdóttir (f. 1994) útskrifaðist af myndlistarbraut Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam í Hollandi 2020 og býr nú og starfar á Akureyri.
Fríða vinnur með sögusagnir í gegnum blandaða miðla, vídeóverk, skúlptúra, textaverk og ýmiss konar handverk. Verk hennar líkjast oft náttúrulegum fyrirbærum og innihalda sterkar táknmyndir, þannig dramatíserar hún hversdagsleikann og segir frá einlægum upplifunum. Fríða hefur sýnt bæði hér á landi og erlendis, má þar nefna einkasýningu hennar Ekkert eftir nema mýktin í Listasafninu á Akureyri, Þú veist hvað þau segja um… í Mjólkurbúðinni og Murky Waters á Sigurhæðum. Hún hefur komið að uppsetningu og skipulagningu fjölmargra menningarviðburða eins og t.d. Boreal Screendance Festival, Salon de Refuses í Deiglunni, Akureyrarvöku og Barnamenningarhátíð auk fjölbreyttra viðburða í Kaktus sýningarými.
Performers
-
Vikar MarSauðfjárbóndi á Ytri-Bakka við Hjalteyri og myndlistamaður á Hjalteyri
-
Fríða KarlsdóttirArtist known for mixed media works, video art, sculptures, text works, and various crafts.