Bjartmar og Bergrisarnir

Bjartmar og Bergrisarnir

Bæjarbíó, Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður Directions

Sat 19.09.2026 20:00

Bjartmar og Bergrisarnir snúa loksins aftur í Bæjarbíó eftir allt of langa bið.

Það er alltaf einstök stemning þegar Bjartmar Guðlaugsson og Bergrisarnir stíga á svið og nú gefst loksins tækifæri til að upplifa þá aftur í Bæjarbíói.

Á tónleikunum verður farið yfir glæsilegan feril Bjartmars og flutt mörg af hans vinsælustu lögum sem hafa fylgt landsmönnum í gegnum árin.

Með Bjartmari á sviðinu eru:

• Júlíus Freyr Guðmundsson á bassa og söng

• Birkir Rafn Gíslason á gítar og söng

• Daði Birgisson á hljómborð og söng

• Arnar Gíslason á trommur

Þetta verða tónleikar þar sem húmor, gleði og sígild lög fara saman í kvöldstund sem enginn aðdáandi Bjartmars vill missa af.

Mömmur sem beygla alltaf munninn og kótilettukarlar eru að sjálfsögðu sérstaklega velkomin. Haltu kjafti!