Kvartett Sigurðar Flosasonar á Múlanum
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Directions
Tue 28.07.2026 20:00
Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með sumardagskrá sína með spennandi tónleikatvennu þriðjudaginn 28. júlí og miðvikudaginn 29. júlí kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum kemur fram kvartett saxófónleikarans Sigurðar Flosasonar sem flytur görótta og grípandi tónlist á mörkum jazz og blús. Meðlimir hljómsveitarinnar eru reynsluboltar af ólíkum kynslóðum Íslandsjazzins; Sigurður Flosason leikur á saxófón, Agnar Már Magnússon á Hammond orgel, Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar og Einar Scheving á trommur. Á tónleikunum flytja þeir lög eftir höfuðpaurinn sem nýlega komu út á plötu hjá Naxox/Prophone útgáfunni í Svíþjóð.
Sigurður Flosason Quartet
The Sigurður Flosason Quartet plays groovy music that mixes jazz and blues. The members of the band span different generations and are all experienced players of the Icelandic jazz scene; Sigurður on saxophone, Agnar Már Magnússon on Hammond organ, Andrés Þór Gunnlaugsson on guitar and Einar Scheving on drums. The quartet will play melodic compositions by Flosason from his most recent CD.
Sigurður Flosason, saxophone
Andrés Þór Gunnlaugsson, guitar
Agnar Már Magnússon, hammond organ
Einar Scheving, drums
The concert starts at 20 @ Björtuloft, Harpa Concert House. Tickets ISK 5200.
Spennandi sumardagskrá Múlans heldur síðan áfram á þriðjudags- og miðvikudagskvöldum fram í miðjan ágúst. Múlinn er á sínu 29. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans.
Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.
Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna.
Tónleikar Múlans fara fram í sumar á þriðjudags- og á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 5200 og 3800 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu
Performers
-
Sigurður Flosason Quartet
The quartet performs Sigurður’s melodic and groovy music somewhere in between jazz and blues.